|
11.05.2009 14:38:17 / moraudur
Ég datt í blómin Gleymdi mér í ilmnum Sökk í frjósaman jarðveginn Flæktist í rótarkerfinu Drógst upp með næringunni Og gufaði upp
»
03.05.2009 18:05:13 / moraudur
ég er sko löngu komin heim frá France, Bloggandinn hefur ekki komið yfir mig og veit ég ekki afhverju...
En nú kemur sumarið og fuglarnnir flestir mætti. Einhvernveginn er miklu auðveldara að vakna á morgnanna við fuglasönginn þrátt fyrir að það sé skítaveður!
Skólinn bráðum búinn og prófin taka við og svo loksins smá frí frá stórum þykkum enskum fræðibókum! Búin að gera ritgerð í örverufræði sem heitir hveraörverur í djúphafi. Talvan stóð heima á borðinu með word opið því mamma ætlaði að fara yfir hana en þegar hún lítur á tölvun snýr hún sér að mér með furðusvip og spyr mig hvort ég sé viss um að það eigi að standa hverFaörHverVur?? En þá hafði hún stóra systir mín ekki staðist mótið og ruglaði svona líka mömmu í rýminu!
Kári kom með börnin sín vestur og þegar ég og ella komum heim sat hann í sófanum með snakkpoka á borðinu sem var beikonbugður...við hrópuðum upp yfir okkur hvort hann væri vitlaus að éta svínaflensu??
En ég komst að því að Ísland er of fámennt land fyrir fjölmiðla! Þeir segja allir það sama og tala um sama efnið endalaust þangað til að nýtt tískumál kemst í gang! Þetta gerir mann svo þreyttan í eyranu! Enda er ég viss um að ef engir fjölmiðlar væru myndu allir frétta allt hvort sem er eins og í sveitunum í gamla daga! Eina sem þyrfti væri að heimsóknir á næsta bæ og í næstu sveitir yrðu algengari!
En nú nenni ég ekki meir og kveð að sinni
»
09.04.2009 09:13:57 / moraudur
bonjour
sit i ibud Emilie og Christophe i Toulouse, 4 staerstu borg Frakklands, eg er alveg komin ur aefingu a franskt lyklabord svo eg einbeiti mer ad adalatridunum. Vedrid er aedi, sol og blida og i dag er skodunarferd um toulouse sem er kollud rauda borgin thvi allt er byggt ur raudum mursteinum. Er ad hlusta a goda utvarps ras sem lysir ser sjalfri ekki sem utvarp heldur bara tonlist.
Ferdalagid gekk vel, eitthvad biladi lestin halfa leid til stodvarinnar sem eg atti ad skipta um lest svo eg elti bara folkid, spurdi mann hvert eg atti ad fara; for thangad, tha kom onnur tilkynning og allir foru yfir a naestu stod, og eg elti en svo kom lestin hinum megin og allir foru i hana, og eg lika. Tha var komid ad theim timapunkti ad eg vissi ekkert hvert eg vaeri ad fara svo eg hoppadi ut og thad vildi svo heppilega til ad eg var bara vitlausu megin vid anna og thurfti bara ad labba yfir brunna til ad komast a auserlitz lestarstodina. A leidinni yfir brunna var hropad eitthvad ad mer af einhverjum karlmonnum en eg ad sjalfsogdu let thad ekki a mig fa.
Daginn eftir, loksins komin heim tha rigndi og eg for natturulega ut, blotnadi i lappirnar og for inn og tokst ad grilla sokkana mina, sem ekki verdur utskyrt nanar her.
Thad er kominn nyr hundur og nyr kottur, kotturinn er finn en hundurinn ungur og alltaf utan i manni, en mjog saetur thegar hann sefur.
Vedrid vard svo betra og eg for ut i gongutur i solinni og hlustadi a sveiflurnar a golfvellinum fyrir nedan.
Var buin ad gleyma hvad mer fannst gaman ad fara ad kaupa i matinn. thad er svo mikid urval og kjotbord; ostabord og fiskibord, oteljandi avextir og allt svo skemtilegt.
Eg og rosine forum i leidangur ad leita ad Flan, sem er rosa gott, thad fannst hvergi og vid skruppum i naesta bae i skodunarferd og fundum thad thar loksins.
Eg var dyggur addaendi franska idolsins herna fyrir 3 arum og svo heppilega vildi til ad thad er i gangi nuna og eg nadi thvi a thridjudaginn.
En stefnan er tekin a pyranneafjollin a morgun til ad skida...eg kann ekki ad skida, hef bara farid a gonguskidi og farid upp i hol og rennt mer nidur og latid mig detta til ad stoppa. En thad verdur aedi, heitur pottur og svona.
En jaeja eg er farin ut a svalir ad vidra feita kottin hennar Emilie sem heitir aprikosa en er karlkyns samt.
kvedja fra france Idunn
»
31.03.2009 18:48:09 / moraudur
Nú er manni spenntur!! Flýg út á mánudaginn og get ekki beeeðið eftir að sjá alla og borða allt sem ég saknaði!
Við fórum á afmælisgjöfina hennar mömmu frá mér, ég pabbi og mamma og hún var æðisleg!! Mæli eindregið með Brák, sýnd í landnámssetrinu. Fyndið, fræðandi, fallegt og fjölskylduvænt!! En ekki setjast á fremsta bekk því hún, leikonan, Brynhildur var alltaf að kyssa fólkið á fremsta bekk og strjúka á því lærin og stela af því höttum! En það var gaman fyrir fólkið í skugganum á aftari bekk. En þetta er held ég með bestu leikssýningu sem ég hef séð, þetta og með fulla vasa af grjóti stendur upp úr. Svo fannst mér best hvernig hún lék þess frægu íslendingahetjur, úr Eyglu og Laxdælu, eins og mestu vitleysinga og rugludalla....sem þeir náttúrulega voru.
En ég keypti mér páskaegg áðan í bónus, kom heim og ætlaði að skutla því á borðið, hitti ekki og það smallaðist í gólfið í þúsund mola!! Og það var ekki páskaegg lengur heldur brotnir tilhlökkunar molar og ég ætla að skila því og segja að það sé gallað! Hafi bara brotnað og nokkrir molar týnst....kannski ég skili bara vonda namminu og segi að eggið hafi brotnað og verið ónothæft!
En ég held áfram að telja niður dagana í sæludagana!
kv. Iðunn
»
24.03.2009 16:27:45 / moraudur
Nú styttist í ferðalag í land Ástríks og Steinríks!! Aðeins tvær vikur!!
En þangað til verð ég að hugsa um örverur, vistfræði og lífefnafræði. Sökkti mér svo í örverurnar áðan að ég fékk þær upp í heila og er með hausverk núna.
Ég get nú ekki mikið skrifað núna þar sem lífið rær áfram á árabát á lygnum straumi jarðaránnar!
En datt í hug orð til að kasta fram!
í stað þess að segja Hvað segiru gott þá er hægt að kasta fram: Ertu glaður maður? Mjög skarpt og hnitmiðað.
Svo til námsmannastúdína má segja: Ertu að læra mín kæra??
Og ef einhver er í vandræðum, þegjandi yfir tölvunni er komið nýtt máltæki, upprunnið út Gettur betur: Hvernig gengur að gúgla Davíð minn?
Kveðja Iðunn
»
18.03.2009 20:40:03 / moraudur
Fór í bankann, ekki banka!
Fór til að taka út evrur fyrir Frakklands ferðina miklu sem verður farin 6 apríl! Ég er ekki enn búin að fatta að ég sé að fara en mun sennilega fatta það þegar ég verð komin á franska grund!
Eeeen ég hafði ekki hugmynd um hvað ég ætti að taka mikið út! bankakonan sagði mér upphæð í kr sem jafngildir evrum og ég náði engu samhengi! Svo ég stóð bara og tók svo bara upphæðina sem konan var búin að segja og fór.
Ég þarf nú varla mikinn pening því ég verð í fríu fæði og húsnæði, aðallega pening í lestir og þannig!
En mikið hlakka ég nú til!
Mig langar líka bara í sumarfríið því það er svo mikil keyrsla á þessu námi að maður verður alveg ruglaður! Stífar 7 vikur, próf og svo beint aftur í skólann! Er frekar langþreytt!
En ég ætla mér heim í Votalækjarnýlenduna um helgina og slappa af og dekra við mömmuna mína sem á afmæli bráðum!
En ég hef ekki tíma í þetta því örverufræðin, lífefnafræðin og vistfræðin bíða mín! Mikið hvað þessi fræði eru uppáþrengjandi! eeeen ekki leiðinleg!
»
11.03.2009 14:23:43 / moraudur
Góðan daginn
Nú er ég loks búin í prófum og í tilefni þess brunaði ég í stærsta bæinn og heimsótti ömmu og afa og E-fjölskylduna. Það var ofsalega gaman og huggulegt allt saman. Elína er farin að labba og hefur hlotið viðurnefnið labbilína (samt bara frá mér sko). En hún labbar út um allt með bumbuna á undar eins og stór bangsi sem mann langar bara til að knúsa. Svo var svo gaman að henni því hún er að læra svo mikið þessa dagana. En fyndnast var þó þegar Eero fór að sýna mér sippubandið sitt sem er úr plasti. Þá prófaði ég það og þegar mér mistókst og ég fékk það í tærnar fór Elína að skellihlæja! Sat upp í sófa eins og minnti helst á afa sinn og bara hló og hló! Ég hætti að sippa því ég einfaldlega gat ekki sippað fyrir hlátri og Eero hló líka en fannst þetta nú ekki góðlátlega gert af Elínu að hlæja svona af óförum annara!
En Þetta var yndisleg ferð í alla staði og ég bara þakka afa, ömmu og E-fjölskyldunni kærlega fyrir mig 
»
19.02.2009 21:00:15 / moraudur
Ég hef alltaf vitað að inní mér blundar iðnaðarmaður! Upplifði það mjög vel þegar ég fór að skúra nýja leikskólann svo hægt sé að hefja flutninga inn í hann. Það voru enn málarar og einhverjir smiðir að vinna og mér fannst þetta allt svo heimilislegt og fannst ég svo passa þarna inn! Vinnandi með mönnum sem vinna af alvöru! Og lyktin af sagi er svo góð! En rykið var mér aðeins um megn á tímabili því hausinn fylltist af ryki og fúnkeraði ekki alveg eftir það. Ég sveif samt um gangana og leið svo vel innanum sálarfélaga mína alveg þangað til að ég opnaði klósettið til að þrífa og sá hryllinginn!! Þar fóru draumar mínir aðeins út um þúfur en minn innri maður er ennþá iðnaðarmaður í smekkbuxum!
»
10.02.2009 21:29:49 / moraudur
Er að eðlilegt að dreyma að vera aðal gítarleikari rokkbands eiginlega í bíómynd, þurfa svo að hlaupa í burtu til að flýja aðdáendur og hina meðlimi bandsins, troða sér í búning sem var eiginlega m og m karl en samt svona ferðagufubað, ætla að hoppa út í bíl sem er þá gamli skólabíllinn og tónleikarnir allt í einu í Lýsuhólsskóla.
Er eðlilegt að dreyma að hafa unnið einhverja lúxusferð. vaknað upp í lúxusíbúð en hún er stödd upp á lofti í kirkju og eiga í vandræðum með að klæða sig því fyrir ofan er diddú og píanóleikari að fara að spila???
ég skil ekki neitt!
verð að fara að halda draumadagbók....þvílík steypa!
»
29.01.2009 14:22:24 / moraudur
Hún Gyða frænka mín fékk þá frábæru hugmynd að smala liði til að spila saman íþróttir á varmalandi einu sinni í viku! fyrsta skiptið var seinasta mánudag og ég hef ekki skemmt mér jafn vel í íþróttum síðan á samstarfsdögunum góðu þegar markmannsferill minn stóð sem hæst! Þetta jafnaðist alveg á við föstudagsfótbolta heima á sumrin!
Fór til sjúkraþjálfara til að laga einhverja leiðinda vöðva sem gerðu mér lífið leitt í sumar! Ætla sko að sameina vellíðun og vinnu næsta sumar!
Sólin skín á Hvanneyri!! Og það er logn, lýg því ekki!
Las bændablaðið í tætlur í dag og er ekki frá því að vera á móti inngöngu í ESB ef það er svona óhagstætt fyrir landbúnað hérlendis.
Saga okkar Bjorn heldur áfram í efnafræðinni. Hann kennir okkur í dæmatímunum og um daginn var hann að útskýra eitthvað sem ég held að ég hafi ekki skilið. Hann talar alltaf í bland norsku, ensku og íslensku. Svo teiknar hann upp á töflu einhver form og segir að það sé hringur, eitthvað annað og þríhyrningur. Nema hvað að hann segir trekant og ég óvart missti mig og tautaði trekant og hló aðeins. Þá flissuðu nokkrir og Bjorn snéri sér við með kostulegan svip, stundi pínu og sagði svo: "allavegana" og hélt áfram.
Annars er hann mjög góður kennari, framar vonum!
kv Iðunn
»
23.01.2009 23:14:54 / moraudur
Nokkrar athugasemdir sem ég verð að skrifa hér:
Hver í ósköpunum stjórnar því efni sem er sýnt á rúv um helgar??? Mig langar ekki að sjá fáránlegar bandarískar fjölskyldumyndir með fólki í risa bangsabúningum í aðalhlutverkum! Svo langar mig ekki að horfa á spennumynd þar sem risaköngulær eru aðal ógnin fyrir utan það að sú mynd er endursýnd!!
Einnig finnst mér frekar kaldhæðnislegt að það sé til eitthvað sem heitir stríðsglæpur!
Svo er það alveg ljóst að það að verða forsætisráðherra eykur líkur á krabbameini um 80%.
Nýkosinn bandaríkjaforseti er ekki aðeins svartur heldur örvhentur líka svo ekki er öll von úti!
Svo finn ég til mikillar samúðar með dómkirkjunni, alþingishúsinu sjálfu, löggunni og sérstaklega þeim sem starfa við að þrífa borgina!!
Annars sakna ég að geta lesið moggann á morgnanna og bókanna í eymundson á fjórðu hæð!
það var ekki meira í bili kv. Iðunn
»
12.01.2009 13:42:23 / moraudur
Sá á mikið hrós skilið sem fékk Evu maríu í júróvisionleiðindaþáttinn og setti kynnana í huggulegar peysur og lét þær sitja í sófa. Þannig minnkaði vandræðalegheitin um helming og maður þarf ekki að skýla augunum fyrir óþarfa glamúrklæðnaði Ragnhildar!!
Annars hafa lögin ekki mikið tekið framförum, alltaf jafn leiðinleg.
hélt að það væri væmna vikan á rás tvö því lögin voru allt í einu svo leiðinleg og róleg en svo fattaði ég seinna að þetta voru bara júróvisionlögin!
En nóg um það!
Skólinn byrjaður aftur og ég komin á Hvanneyri eða Djammeyri eins og það kallast núna.
Ég hef tekið þá róttæku ákvörðun að breyta herberginu mínu og ef ég ætti það sjálf myndi ég kaupa mér fullt af marglita málningu og skreyta það með mínum listræna anda! En ég á það ekki...kannski ég máli bara lak og hengi það upp?
En nú eru hátíðarnar búnar eða Át-tíðarnar eins og ég kýs að kalla þær. Loksins er sykurinn runninn af manni og heilasellurnar að virkjast upp á nýtt.
En það er best að halda áfram í fríi því í dag er síðasti jólafrísdagur Guði Sé Lof!! Því ég er búin að vera að deyja úr fríi!!
kv. Iðunn
»
02.01.2009 20:19:53 / moraudur
Áramótaheit?? Neeeiii! Ég hef annað orð yfir það : Framfarir! Ég stefni á framfarir á nýja árinu á mörgum sviðum! Aðallega á akademíska sviðinu.
ég bíð enn eftir jarðfræði einkunn. Rostinn er farinn að lækka og spennan þynnist því biðin er erfið!
Jólin góð og áramótin frábær fannst mér. Ég er samt svo innilega tilbúin í að fara að gera eitthvað af viti núna. Alveg nóg af slappi af og kósýheitum! Langar helst á sjóinn í kulda og strit.
Svo er þessi rigning og kuldi ekkert til að hrópa húrra fyrir. Nýt hvert tækifæri til að komast niðrá sjó sem er uppáhalds staðurinn minn þessa stundina. Finn alltaf eitthvað nýtt þar.
Hlakka til að fara í skólann og læra um grös, vist, kort og efni 
Iðunn
»
28.12.2008 22:59:03 / moraudur
Nú er ég almennt kölluð óviti heima hjá mér. Síðan Elína varð svo klár að kalla mig óvita þá loðir það bara við.
Ég ætlaði að vera svo góð og menntuð að horfa á Pál heimspeking í sunnudagskastljósinu, lagðist í sófann tilbúin með eyrun spennt og steinsofnaði...alveg óvart. Vaknaði svo þegar það var búið, það var örugglega tilvlijun samt.
Las kristnihald undir jökli um daginn og uppáhaldspersónana mín er séra Jón! Nútíminn burstar í sér tennurnar í staðinn fyrir að fara með kvöldbæn eins og han orðaði það. Annars er mér búið að líða eins og umbi! Er að spá í að fara í kaffibindindi ævilangt eða meira kökubindindi því jólaboð og jólaböll hafa leitt til ofneyslu á kökum og gotteríi!
En jæja...
»
17.12.2008 18:20:13 / moraudur
Jáá ég er búin í prófum!! Það erfiðast var fyrst og ég náði því!! Það léttast var næst enda eyddi ég þremur heilum dögum í að læra öll þay fyrirbrigði sem finnast innan og utan jarðar!! Ég er búin að segja svo mörgum að ég rústaði því prófi en fór svo að hugsa hvað það væri fyndið ef ég fengi svo bara 7 eða eitthvað í þá áttina! en þá fór ég að hugsa meira (eins og gerist stundum) og komst að því að í mínum huga rústaði ég þessu prófi og ef kennarinn er ekki sammála þá skiptir það ekki máli því ÉG rústaði þessu prófi!! Valhoppaði út og kafnaði í hundslappadrífu sem fauk upp í mig eins og ryk!
Svo fékk ég gubbupest fyrir tölfræðiprófið og gekk bara fínt á prófinu! Með glærurnar mér við hlið náttúrulega!
Svo hélt ég væri komin í jólafrí en þar sem ég hugsa svo vel um náungann er ég stödd í bænum eingungis til að gleðja aðra!! Löngu búin að kaupa allar jólagjafir og svoleiðis vesen. Heimsóknatímar Iðunnar eru núna að verða uppbókaðir!! En það er bara heilmikil vinna að deila sínum tíma með öðrum! En ángægjan kæfir þá vinnu í kaf!
Svo fer ég vestur heim þ.e.a.s. Full west! OOOG ÞÁ eru jólin alveg komin! jjaaa...að vísu á eftir að gera laufabrauð, og skreyta meira og eitthvað fleira svo.....jólin koma allavega þegar þau koma!!
Frí til 12 janúar svo ef einhvern fyrir vestan vantar vinnumann þá stekk ég upp sko!! Bíðst jafnvel til sjálfboðavinnu en það er samt takmarkað ef vinnan felur í sér þrif....nóg að þrífa leikskólann á hverjum einasta degi næstum!
takk fyrir og gleðilega vikufyrijól!
»
Síður: 1 2 3 ... 12
|